föstudagur, mars 30, 2007
@ 16:50 Dimitri from Paris mixið sem fylgdi með DJ mag fyrir nokkrum árum, er alveg rugl gott mix! fimmtudagur, mars 29, 2007
@ 16:04 Fax Ég sendi fax áðan. Raunar tvö. Segir maður þá: "Ég sendi föx áðan" ?
@ 13:39 Stórvirki Vá, það voru sameinuð nokkur lögregluumdæmi - skyndilega er löggan orðin mun sýnilegri og færari að kljást við ýmis verkefni. Ef þetta var svona ótrúlega skynsamlegt, afhverju var þetta ekki gert fyrr? Þá væri hugsanlega búið að 'upplýsa' hver braut hjá mér eldhúsgluggann.
@ 12:25 Á 21. öldinni er enn til fólk sem kallar sig Freaudista. Á internetinu, þar sem allir geta séð það. Ég gef mér stundum að almenningur sé upp til hópa skynsemisfólk. Það er óskynsamleg ályktun. Núna er ég td. að fá útrás á hneykslan minni með því að reyna að koma henni sæmilega gáfulega á skriflegt form. Það myndi Freaud líklegast kalla göfgun. Eftir nokkrar mínútur gef ég hvötunum svo lausann tauminn. Ég geri það oft, ég er ekki með nógu sterkt yfirsjálf.
@ 12:00 Jarðskjálfti Flekar rákust saman. Jörðin skalf. Svo kom eldgos. Nóg í bili en bíðið spennt, í næstu viku gerir vefatómið ítarlega úttekt á gosinu í Heimaey.
@ 11:20 Fullyrðing Alla feminista dreymir um eitthvað stórt innst inní. miðvikudagur, mars 28, 2007
@ 10:43 Flottur Þessi er helvíti nettur. Ég fíla hann vel. Hann er áhugamaður um jarðskjálfta og eldgos, alveg eins og ég. Svo er hann líka höstler, sbr. sirkus.is ævintýri hans. Lakkrísmöndlur eru leiðin fram á við. mánudagur, mars 26, 2007
@ 14:50 Skandall Ég þú'aði og þér'aði manneskju í sömu setningu um helgina. Þvílíkt rugl á manni stanslaust. Ég er með móral.
@ 13:07 Ég er jákvæður á hommabari. Með því móti eru þeir ekki sposserandi um allan bæinn. Var þetta kannski pólitískt rangt? laugardagur, mars 24, 2007
@ 13:42 Dægurlag Hvers vegna varstu ekki kyrr? Höf. Jóhann G. Jóhannsson.
@ 01:04 Djöfull er ég fúll að hafa tapað uppboðinu um þennan hljóðgerfil. Lamdi í tölvuna og læti. Fast. Polysix maður, Polysix! Það munaði svo mjóu. fimmtudagur, mars 22, 2007
@ 17:56 40.000 gestir þýðir bara eitt. Ég er skemmtilegur maður!
@ 17:26 Opinberar persónur Mér finnst það betra nafn á þessum sískemmtilegu pistlum. Sá Kolbrúnu Halldórs í Strætó. Hún var ekki að lesa klámblað, né heldur klámbók sbr. Tígulgosann. Hún virtist kynferðislega vannærð. Hún var að spjalla við einhvern útlenskan frambjóðanda á vinstri vængnum. Hvaða spaug er það annars? Ég tel mig til dæmis eiga lítið erindi inn á þing í Svíþjóð eða Belgíu.
@ 17:17 Hvað ætli Jói Haffirðingur kjósi? Með, móti, hlutlaus? Spurning. Kannski kýs hann U2. miðvikudagur, mars 21, 2007
@ 17:37 Gus Gus á laugardaginn! Sendi 5 tölvupósta áðan. Það er meira en ég er vanur að senda í einum rykk. En þar sem ég er umboðsmaður tónlistarmannsins Asli, þá var ég tilneyddur. Asli er að meika'ða. sunnudagur, mars 18, 2007
@ 23:24 Dægurlag The Marvellettes - Mr. Postman föstudagur, mars 16, 2007
@ 17:51 Tæ Var að panta. Vissi ekki hvað ég vildi, spurði út í matseðilinn. Ætlaði svo að panta mér eitthvað... Mætti á staðinn. Biðu mín tveir réttir, hvorugur 'sá rétti'. Plan ahead.
@ 13:51 Setur hún IP töluna manns í sótthví? Frystir tenginguna? Kastar yfir mann neti?
@ 13:45 Í Kína eru netlögga. Steingrímur J. vill einhverskonar netlöggu. Hvernig handtaka netlöggur mann?
@ 12:32 Are you saying Ukraine is weak!? fimmtudagur, mars 15, 2007
@ 20:45 Af frægu fólki Sá Hallgrím áðan. Man ekki hvers son hann er. En hann samdi Eurovision lagið 'Segðu mér allt', sem var aldrei sigurstranglegt. Hann var að koma út úr Master Card.
@ 16:13 Fyrst Orri Harðar er byrjaður að blogga aftur, byrja ég líka. miðvikudagur, mars 14, 2007
@ 03:21 Ekki það að ég hafi séð klám, las þetta bara á netinu.
@ 03:20 Svo eru að staðaldri fleiri konur en karlar í klámmyndum. Ekkert jafnrétti í því heldur. þriðjudagur, mars 13, 2007
@ 19:26 Varðandi allt þetta klámtal og niðurlægingu kvenna í klámi, vill Vefatómstöðin benda á þá staðreynd að karlmenn í klámiðnaðinum hafa það yfirleitt mjög skítt. Fá lítið borgað, byrja ferilinn oft í hommaklámi og þar fram eftir götunum. Jenna Jameson er áhrifamesta manneskja í klámiðnaðarins í dag. Hvar er jafnréttið í því?
@ 00:02 Sauð vatn um daginn. Fullan pott. Gleymdi á hellunni. Svoldið svona, ónáttúrulegt gufubað. mánudagur, mars 12, 2007
@ 19:17 Eða ætti ég kannski að færa mig á Moggabloggið?
@ 10:49 Orri Harðar er líka hættur að blogga, alveg eins og ég. laugardagur, mars 10, 2007
@ 17:15 Það er snúið að hætta að blogga. Ég mun sakna þess að skrifa hingað á vefatómstöðina. fimmtudagur, mars 08, 2007
@ 20:23 Ég kom hingað til að blogga - gleymdi að ég væri hættur. Þið afsakið.
@ 19:22 Ég hugsa ég nenni ekki lengur þessu bloggi. Spá í að hætta. Núna.
@ 18:21 Ég mætti seint í vinnuna í dag. Ég þorði ekki að leggja af stað fyrr. Blóðþyrsti Litháinn var eitthvað á sveimi fyrir utan. þriðjudagur, mars 06, 2007
@ 23:31 tyttist víst í ferðina með vinnunni til Prag. Ekki nema rétt rúmur mánuður til stefnu. Hlakka orðið ekkert smá til, enda hef ég aldrei komið þangað áður og þetta á örugglega bara eftir að verða gaman. Verðum reyndar bara í 4 daga, en ætla sko sannarlega njóta þess, enda orðið annsi langur tími síðan ég fór út síðast. Svona að örðu leyti var helgin bara fín. Við félagarnir gerðum okkur smá dagamun í gærkvöldi og fórum út að borða. Fyrir valinu varð Askur, hef reyndar komið nokkrum sinnum þar áður, en félagi minn var að koma þangað í fyrsta skipti. Urðum sko ekki fyrir vonbrigðum og var hann hæst ánægður með matinn og sömuleiðis ég. Eftir þetta kíktum við heim til hans þar sem það vorum blandaðir nokkrir kokteilar. Hef ekki verið að prufa svoleiðis, en það var nú tími kominn til. Held bara að ég hafið fundið einn í gær sem var virkilega góður. Komst nú nokkuð langt nálægt því hvað ég þoli í drykkju, en samt varð maður nú ekki alveg á skallanum hehehehe. Annars á þessi félagi minn afmæli núna seinni partinn í vikunni. Þannig að það er aldrei að vita hvað verður gert um næstu helgi. Var samt frekar fínn þegar ég vaknaði í morgun, engin þynnka eða svoleiðis. Svo fór dagurinn bara að mestu leyti í lærdóm, enda alltaf nóg að gera þar. Það er oftast nær talað um stjörnurnar sem Íslandsvini þegar að þær koma hingað til lands, í lengri eða skemmri tíma. Alveg sama þó að þær séu hundfúlar yfir vistinni hérna. Öll munum við eftir því þegar að Jerry Seinfeld og Robbie Williams komu hingað hundfúlir og lak af þeim fýlan við allt og alla hér. Samt voru þeir kallaðir sérstakir Íslandsvinir. Þetta er svona stjörnudýrkun, enda finnst mörgum svaka flott að fá stjörnu til landsins. Nú er leikarinn Leonardo DiCaprio að koma til landsins. Ekki er hann þó að koma hingað til að leika í kvikmynd eða fara í frí. Mun hann koma hingað til að taka þátt í myndatöku fyrir glansritið Vanity Fair, og má því búast við að dvölin verði stutt en geti eitthvað auglýst landið upp, enda fer blaðið víða. DiCaprio er auðvitað mjög þekktur leikari. Hann hefur þó ungur sé verið tilnefndur þrisvar til óskarsverðlauna fyrir leik, síðast fyrir Blood Diamond á óskarsverðlaunahátíðinni fyrir rúmri viku. Hann var áður tilnefndur fyrir The Aviator og What´s Eating Gilbert Grape? Held að ég láti þetta bara duga bili. !
@ 22:41 Ef Eiður héti Kári, myndi það mynda stórskemmtilegt nafnarím. Til glöggvunar birtist það nú á prenti. Kári Smári. mánudagur, mars 05, 2007
@ 10:33 Hámarksmánudagur! föstudagur, mars 02, 2007
@ 16:12 Munið þið þegar Jordan tróð yfir Patrek Ewing í úrslitakeppninni í den? Ekkert lítið svalt. Annars er Ewing ein besta sönnun þess að við séum komin af öpum. fimmtudagur, mars 01, 2007
@ 07:13 ![]() Tilvalið! |