föstudagur, desember 30, 2005

@ 22:30
Taka sett?

Link

???? !!!!

fimmtudagur, desember 29, 2005

@ 20:28
link

Einn af fjórum bestu dans dj'um Íslands hvað? Ég er auðvitað langbestur :)


Sjáumst á skrallinu.


@ 16:31
Og helvítis útvarpið og aðgengisvæðingin

Heiðar Austmann segir eitthvað á þá leið að eitt gamalt og gott með Nightcrawlers sé á leiðinni.

Ég verð allur spenntur enda er push the fílíng on dansklassík. Svo kemur mesta nauðgun á lagi... alveg síðan U2 spilaði lag seinast.

Gubb og prump segi ég. If it ain't broke dont fix it and dont austmann it either.

miðvikudagur, desember 28, 2005

@ 16:58
Nokkur lög í bígerð. Chill í kvöld. Big time.

föstudagur, desember 23, 2005

@ 23:39
Jólahugvekja vefatómsins.

Ok.

Einsi Glæpur úr Skuggabörnum var glæpamaður og rugludallur en höfðaði til fjöldans og fékk samúð og lófaklapp.

Elvis var algjör rugludallur en hann er Kóngurinn og allir fíla hann.

En allir ófríðu hæfileikalausu rugludallarnir og glæpamennirnir eru bara settir í DV. Tildæmis Einar Ágúst.

Hvers á hann að gjalda?




fimmtudagur, desember 22, 2005

@ 22:31
Shit ég er búinn að týna fælunum fyrir Worm is Green remixið sem ég gerði í vor! Og rispa eina diskinn minn með því í klessu! Jammjammjamm...


@ 20:17
Í öllum svona froðublöðum er talað við eitthvað hyski um einhverja algjöra froðu eins og; hvar í 101 sé besta Kaffið, hvaða sólarpúður er inn, hvað Elvis sé trendý verslun og sitthvað annað æðislegt. Hverjum er ekki drullusama.

Ef ég væri ritstjóri myndi ég frekar spyrja fólk hvar því þætti best að skíta utan heimilis, hvort það hefði reykt krakk, hvort það óttist víetnömsku nýbúamafíuna og hvernig það er að fíla Búnaðarbankann.

Þá fyrst værum við hress.

Utan heimilis finnst mér best að losa farm í skýlinu við ofninn í Sementsverksmiðjunni. Frekar shabby dolla sjaldan þrifin og svona, en alltaf volg seta. Fyrir volga setu er ég til í að fórna slatta hreinlæti.


miðvikudagur, desember 21, 2005

@ 01:39
skyld'ða vera jólahressleiki ...

Ég var að fá símtal frá gaur héðan af Skaganum sem ég kannast lauslega við. Ég ætla að breyta nöfnum afþví ég er ekki DV. Þetta yrði samt líklega prentað í DV.

Jón?

Já.

Blessaður þetta er Skúmbi hérna.

Hæ..

- svo var hann heví lengi að koma sér að efninu

Skúmbi: Mér var sagt að tala við þig um gonza..

Gonza?

Skúmbi: Jáh maður!

Ég veit ekki neitt ég nota ekki svoleiðis.

Skúmbi: Þegiðu mar hættu að grínast í mér!

Í alvöru.

Skúmbi: Er þetta ekki Jón blabla?

Nei...

Skúmbi: Shiiiiiii!!! (og skellti á)


Já börnin mín, munið að skoða símaskránna vel áður en þið verslið ykkur jólafíkniefnin ykkar.


@ 00:43
Ég er glaðari núna heldur en í gær.

þriðjudagur, desember 20, 2005

@ 16:59
Damn það svaraði ekki. Ég sem var búinn að peppa mig svo hressilega upp í þetta.

@ 16:57
Hey, þetta er líklega næst merkilegasta blogg ársins. Ég er nefnilega að fara að hringja í Magnús Eiríksson, sem samdi Þorparann - og sjá hvað hann segir. Blogga því svo sem merkilegasta bloggi ársins. Vonandi svarar hann svo næsta færsla standi undir nafni.

@ 01:21
Jájájá, vonandi fer þetta allt saman vel.

sunnudagur, desember 18, 2005

@ 08:08
Áðan.. í útvarpinu heyrði'ég lag ... með mér!

link

heyrði það reyndar ekkiþví ég var að vinna

ætla að fagna þessu með ííískalda thulenum mínum svona eftir næturvaktina. og kannski skíta líka

fimmtudagur, desember 15, 2005

@ 23:10
does not compute

Malt og allt rímar, en Malt rímar ekki við allt!!!

@ 20:34
Then the bitch said, I can't sell you no brew and i was like wtf?

framhald seinna

mánudagur, desember 12, 2005

@ 04:40
Lag dagsins í dag er hinsvegar Jonfri vs. Mannakorn - Þorparinn. Meðganga hófst í fyrradag og það fæddist í nótt kl 4.39 og er 9,12 merkur að lengd og við góða heilsu.

sunnudagur, desember 11, 2005

@ 23:20
Lag haustsins er Neil Young - Harvest tekið af samnefndri plötu.

Lag vikunnar er Mannakorn - Þorparinn

Lag dagsins er Kate Bush - Hounds of Love

Þar hafiði það!


laugardagur, desember 10, 2005

@ 14:43
Hey! Gigg framundan;


16. des @ Grandrokk ásamt Worm is Green, Óla Ofur & Úlpu.

31. des @ Broadway ásamt Óla Ofur og Exos.

21. jan @ NASA ásamt mörgum.


föstudagur, desember 09, 2005

@ 08:11
Djö var ég fullur í gær! Tók hreppstjórabeygju út í keisaraskurð!

Tjónaskýrslu á etta..

fimmtudagur, desember 08, 2005

@ 18:33
Dæmigert.

Ég hlustaði á geðveikustu hátalara sem ég hef heyrt í áðan. Þeir voru á 100þús afslætti. Ég var kominn upp að borðinu að skrifa upp á einhverja tryggingu svo ég gæti fengið þá lánaða heim ... og auðvitað keypt þá. Þá kemur gaur.

Nei ertu að selja þessa? Þórður kom í gær og ætlar að taka þá ...

Ég er í molum.

þriðjudagur, desember 06, 2005

@ 22:55
Djöfulsins snilld er Mannakorn!

mánudagur, desember 05, 2005

@ 23:09
Sjö ár eru slatti en samt bara dropi í hafið - bæði í einu einhvernvegin.

@ 00:11
Já og ég er á promo lista hjá einum plötuútgefanda.

Einmitt einum af uppáhalds útgefendunum mínum í danstónlistarbransanum, nefnilega Urbantorque.

Fékk fyrstu 2 lögin áðan fór ekki illa af stað.

sunnudagur, desember 04, 2005

@ 23:10
blog leikrit part 3

Maður 1: Hvað ertu að gera lagsi???

Veiðimaður: Sleppa laxi!

Maður 1: ok.

föstudagur, desember 02, 2005

@ 08:59
Mig langar að prufa að búa í Buenos Aires.

Í alvöru sko!

fimmtudagur, desember 01, 2005

@ 09:36
inside your soul... i'm wanting it!

& þurfa að gera fleiri lög. Og klára lagið sitt... það er skíturinn. Er að hlusta núna úje beibí fílaðu það annars er það sveðjan!

En hvernig er með bílinn! Ég bloggaði því fyrir svona klukkutíma og það er enginn búinn að múðra!

Og klukkan er hálf tíu og ég er ekki enn búinn að fá nein laun frá Akraneskaupstað. Tíma þeir ekki eða? Ætti ég að labba þangað og biðja um að fá borgað svart. Eða í svörtum vændiskonum. Fengi samt bara svona þrjár vændiskonur ef þær ynnu á íslenskum taxta. Það er frekar lítið.

Þarna braut ég upp hversdaginn aftur - löng færsla! Og skemmtileg. Svo er það smá bónus að ég byrja eiginlega aldrei setningar á 'og', nema núna. Tvíbraut hversdagsleikann. Hvað ætli honum finnist um það?

Þegar stórt er spurt er fátt um svör en nokkuð um röndótta trefla. Tískutrend hvað. Ég fékk mér röndóttann trefil í fyrra, I'm way ahead.

Wayyyyyyy ahead off all you highly fashionable Séð & Heyrt people.

@ 08:43
Til sölu...


My blog is worth $3,387.24.
How much is your blog worth?



Nesi, Dóri DNA og Árnastofnun eru að íhuga tilboð. Verið á tánum. Samt í sokkum. Eða ekki. Mér er skítsama.

@ 08:31
Hvernig bíll er jonfribíll?

Ég vil svör ekkert skápaskoð!

@ 08:11
I'm never wearing Henson again, ever.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?