föstudagur, september 30, 2005
@ 18:03 Ég var að laga plötusnúðaheimasíðuna mína. Mér finnst hún vera funkin' fresh núna úje! bai.
@ 09:50 Vefatómstöðin hefur aðeins eitt að segja! Þetta! miðvikudagur, september 28, 2005
@ 21:34 klukk 1. ég er stór 2. ég er mjór 3. ég er ekki skór 4. aldrei verið í kór 5. drekk bjór
@ 21:19 tuttuguþúsundgestirmaður!
@ 21:16 Tók nokkrar myndir af stúdíóinu sem ég eyði flestum mínum stundum í. myndir! the ultimate dj hangout imo
@ 01:13 Ég hefði bara átt að segja vefatómið hefur þegið fé frá manni tengdum Baugsmálinu. þriðjudagur, september 27, 2005
@ 01:55 vefatómstöðin og baugsmálið - háværar kröfur um afsögn Vefatómstöðin hefur þegið greiðslur frá manni sem Jónína Ben hefur nafngreint í tengslum við Baugsmálið. Pólitískir andstæðingar mínir afhentu Fréttablaðinu þessi gögn árið 2000 þó það hafi ekki verið til þá og birti blaðið ekki gögnin, vegna þess að það var ekki til. Núna ætlar blaðið hins vegar að birta gögnin og vefatómstöðin gerir því hreint fyrir sínum dyrum. Maðurinn er samkvæmt Jónínu eitt af peðum Jóns Ásgeirs. Jónína sagði að Jón Ásgeir stjórnaði netfyrirtæki þessa manns, eða gaf í skyn að hann væri þar við völd í gegnum þennan vin sinn. Jón Ásgeir hefur greinilega nægann tíma. Allavega, þá er skúbbið með þennan ágæta mann sem við getum kallað Hr. X það að Hreinn Loftson átti að hafa lesið tölvupóst sem Jón Gerald hafði sent blaðamanni Morgunblaðsins. Eða það sagði Jónína. Jónína sagði líka að póstur Jóns Geralds væri hýstur hjá netfyrirtæki Hr. X. Heita þetta ekki dylgjur á fjölmiðlafræðimáli? Sökum þessara tengsla Vefatómsins við manninn sem lætur Hrein Loftsson hafa tölvupóstinn hans Jóns Geralds getur hún varla talist óháð lengur og ritstjórn íhugar afsögn. Ég var líka að muna að þegar ég var heimilisgeislaspilarplötusnúður ungur að árum þá fór símareikningur sem netfyrirtækið umrædda sá um að greiða, upp í svona 200þús kjall og maðurinn sem lætur Hrein Loftson hafa tölvupóstinn hans Jóns Geralds reyndi að rukka mig um það, en knésetti mig sem beturfer ekki fjárhagslega og viðskiptalega. Svona hef ég verið heppinn í lífinu. En núna skil ég afhverju netfyrirtækið fékk verkefni eins og bonus.is og 10-11.is sem ég var svo látinn hanna á vefaralaunum sem þættu slæm í Kasmír héraði! mánudagur, september 26, 2005Myndablogg
@ 18:45 Myndina sendi jonfri Myndablogg
@ 17:41 Shaky Myndina sendi jonfri sunnudagur, september 25, 2005
@ 20:15 Já og það sem rútubílstjórinn afrekaði var að sjá það í baksýnisspeglinum að afturhjólið farþegamegin var að losna og fór út og festi það!!! föstudagur, september 23, 2005
@ 17:57 Rutubilstjorinn minn er hversdagshetja manadarins here on the webatomstation - sms færsla jonfri miðvikudagur, september 21, 2005
@ 16:08 Ég er voða metró núna. þriðjudagur, september 20, 2005Myndablogg
@ 16:15 Haglel! Myndina sendi jonfri mánudagur, september 19, 2005
@ 16:21 Skór.is dæmið er frá 17 - 19, á fimmtudaginn eins og áður segir.
@ 14:31 Darkdancer maður!
@ 03:22 Mér finnst 3. sæti og tvöfaldur KR sigur allt í læ tímabil, en við eigum samt að vera stórveldi!!! sunnudagur, september 18, 2005
@ 23:44 Due to my highly fashionable apperance I've been asked to play an afternoon set in Icelandic shopping centre 'Kringlan', during the shopping centre's fashion week. I'll be playing with Ingvi J., a sold geezer and deep house wizard. This will all take place next thursday, the 22nd of september, at the Skór.is outlet, located on Kringlan's first floor. Hope to see you all there ... niii djók bara æfa mig í ensku Myndablogg
@ 23:15 The setup ad Broadway Myndina sendi jonfri
@ 06:00 Djöfull var WIWIWIWIWIWWICKED að spila með Bayer! Við Óli stóðum okkar pligt og spiluðum svona þrjá tíma af eðalvæbs. Er fullur núna i'm not gonna blogg more people? Ok? grooooovey. laugardagur, september 17, 2005
@ 18:20 ég ætla að púlla eðal vibe í kvöld
@ 18:05 Að ríða er góð afþreying. Þessar ríðingar eru bannaðar börnum yngri en 16 ára.
@ 18:04 ALLLIR AÐ KOMA Á BRODDWAY AÐ FÁ SÉR Á BRODDINN !!! HAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAH
@ 17:54 hey það er fjölmiðlafár í kringum mig!
@ 17:26 Í tækinu: Meatloaf - Bat out of hell Í kælinum: Íííískaldur miller Með kvöldinu: Miller time! Já kallinn ætlar svo sannarlega að skemmta sér !!! fimmtudagur, september 15, 2005
@ 15:34 http://daanwashier.blogspot.com/2005_05_01_daanwashier_archive.html http://www2.tranceaddict.com/forums/archive/topic/240800-1.html http://mjremixed.tricky3.co.uk/thrillrmx.html http://www.protonradio.com/show.php? action=bio&bioid=1264&showid=66 http://database.01-mp3search.com/top53-jonfri-24des03.html http://database.01-mp3search.com/top53-jonfri-5feb04.html Ég gjúglaði sjálfum mér og kom upp á ótrúlegustu stöðum mér fannst þessir svona með þeim ótrúlegri.
@ 05:09 Ég á Discopolis! Algjörlega skíturinn. miðvikudagur, september 14, 2005
@ 01:16 Stundum langar mig að,,, kaupa mér hús á Akranesi flytja til Reykjavíkur helga mig tónlistargyðjunni eiga kærustu fara til útlanda að læra eitthvað um hljóð Plötusnúðast í útlöndum eignast börn læra nóg til að geta kallað mig sálfræðing eiga bíl og margt fleira en virðist þetta samt stundum allt vera frekar ósamrýmanlegt. Sjáum hvað setur.
@ 01:08 Róttækt! Gæjaskapur og umtalsvert svalara en vopnað söluturnarán sem er upplýst eftir 2 mínútur. mánudagur, september 12, 2005
@ 15:03 Elgur #1: Kaffi í þessu? Elgur #2: Og sígó? Elgur #1: Æj ég nenni eiginlega ekki að finna mannfólk með kveikjara,,,
@ 14:57 Ég var að kaupa mér forrit á rúmlega 400 dollara. Eða, ég er ekki búinn að fá það samt. Veikir það stöðu íslensku krónunnar umtalsvert... ![]() hallað hefur undan fæti hjá íslensku krónunni sunnudagur, september 11, 2005Myndablogg
@ 20:35 ![]() The sky was pink Myndina sendi jonfri
@ 14:01 Pólskir snúðar í brauða og kökugerðinni eru málið pípúl. laugardagur, september 10, 2005
@ 02:25 Þegar ég var yngri og ætlaði að vera í einhverjum aumingjaskap og leti fannst mömmu það bara ekkert svalt og hvatti mig áfram til góðra verka. Þá reyndi ég alltaf að benda á einhverja sem voru að gera verri hluti en ég, og mamma sagði mér alltaf að ég ætti frekar að bera mig saman við þessa bestu. Ég skildi alveg hvað hún meinti en skil það samt betur núna. Hef velt þessu fyrir mér undanfarið. Þegar ég tek mér eitthvað alvöru mission fyrir hendur þá ætla ég mér bara að skara fram úr. Það tekst ekkert alltaf, en stundum verð ég andskoti fínn. Þetta finnst mér gott veganesti út í lífið og er þakklátur fyrir :) Öll svona skyldu mission fá samt að sitja á hakanum, ég meina auðvitað. Lífið er passlega langt til að nota í það sem maður hefur gaman af. jæja næg væmni í bili kæru lesendur.
@ 00:14 Næsta laugardag (17.sept) er allt að gerast! BROADWAY: ADAM BAYER Exos Tómas THX Jonfri Óli Ofur Breakbeat.is í Norðursal Kalli Lelli Gunni Ewok Hiphop.is í Austursal Bent & 7berg DJ Paranoya Danni Deluxe DJ Mezzo + gestir === semsagt ógeðslega feitt gigg og synd að missa af. Forsala á Broadway (1000kall), byrjar á miðnætti, aldurstakmark 18 (heldég), 1500 kall við hurð. föstudagur, september 09, 2005
@ 16:39 I'M SPOSKUR LIKE A ÞORSKUR FROM THE ICELANDIC SJÓR!!!
@ 16:13 Rapp, skólarapp!
@ 13:01 Bloggvarpsleikrit vefatómsins part IV. Maður 2 þvær sér ekki um hendurnar. Kona 1: Heldur áfram að tala. Maður 2 hugsar "djö... afhverju er lífið aldrei eins og í klámmynd" fimmtudagur, september 08, 2005
@ 17:24 Bloggvarpsleikrit vefatómsins part III. Á kaffistofunni Maður 2: Heyrðu ég náði loksins í Hemma! Maður 1: Og... Kona 1 kemur til skjalanna Kona 1: Kynferðisleg áreitni! Karlmenn eru svín! Jákvæð mismunun! Ég vil starfið þitt! Maður 1: Róleg væna, #2 er nýbúinn að tala við Hermann Gunnarsson, hann þarf sinn tíma. Maður 2 fer og gerir nr.2 inni á salerni
@ 15:32 Um dýrin. Ætli fólkið sem er að missa það yfir loðfeldum og nokkrum hvölum sé sama fólkið og vill láta drepa mávinn í Reykjavík? Vefatómið ætlar ekki að ásaka neinn um hræsni, en hefur samt grunsemdir. Persónulega þykir mér það meiri drengskapur að skjóta mávana heldur en að setja eitthvað eitur í hreiðrin þeirra - það er ekki jafn töff. Ef það mætir maður með byssu þá hafa mávarnir alveg sanngjarnt tækifæri til að forða sér. Jamm jamm mér finnst í lagi að skjóta mávana. Samt er ég dýravinur. Kannski er ég hræsnari? Líklega á fleiri sviðum en mig grunar, en kannski ekki þessu. Lít á þetta út frá nytjasjónarmiðum. Ef ég veiði fisk og ætla að borða hann seinna lem ég hann í hausinn með stein, stundum poppar annað augað út og svona voða gaman. Það er kúl. Ef ég veiði fisk sem ég ætla ábyggilega ekkert að borða og lem úr honum augað er það ókúl. Ef ég fer niður á bryggju á Akranesi þar sem mávar eru lítið vandamál, að drepa máva, að gamni mínu, mjög ókúl. Ef þeir eru skotnir í Rvk. til að losna við vandræðin sem fylgja þeim, kúl. Jamm jamm ég vaknaði við slípirokk og svona 'friðelskandi' aktívistar sem eru á móti því að prófa stuff á dýrum og hlaupa um Finnland hleypandi minnkum úr búrum fá eldmessu í tilefni þess. Ég meina,,, dýravinir að hleypa minnkum úr búrum! Til hvers? Svo þeir fari og borði allar kanínurnar og alla íkornana? Dýravinir my ass. Og ég meina,,, eigum við frekar að prufa stöffið á fólki heldur en dýrum?? þarf að kúka nenni ekki að lesetta yfir! Hr. V. Adóm
@ 14:23 DJÖFULSINS slípirokkur og bölvaður slípirokksmaður. Ég var að fá mér plötusnúðablund hérna...
@ 14:14 Mikill misskilningur varð á Alþingi þegar sími hringdi. Hringitónninn var hið fornfræga íslenska pönklag 'Tík' og var afar pólifónískur. Þingmenn rugluðust hvað eftir annað á þessari pólí-tík hringingu og pólitíkinni sem um ræddi. Jamm pólitíkin getur stundum verið snúin ha! miðvikudagur, september 07, 2005
@ 19:25 Jamm og já. þriðjudagur, september 06, 2005
@ 23:13 Jamm Jamm Jamm. Hörður torfa er með þátt á Rás1. Hlustið hér Já og þátturinn hans heitir sáðmenn. Fyndin tilviljun. mánudagur, september 05, 2005Myndablogg
@ 22:41 ![]() ßarna er eg hnjè hjéé hee,, Myndina sendi jonfri
@ 16:50 Vefatómstöðin spyr! ðats nó gúdd for mí æ dónt níd nóbodí dónt níd nóvonn ðats nó gúdd for mí Hvernig datt Prodigy í hug að nota svona mikið af íslenskum stöfum í lagið sitt?
@ 04:19 Bloggvarpsleikrit vefatómsins part II. Ennþá inni á skrifstofu Maður 2: *fer út* Maður 1: *sest*
@ 04:17 Ef ég myndi skipta blogginu mínu upp í tvo hluta, sem ég hef aldrei ætlað að gera, mætti þá ekki segja að ég hefði klofið atómið? Kannski ekki fyrstur en samt, merkilegt. föstudagur, september 02, 2005
@ 14:04 Bloggvarpsleikrit vefatómsins Inni á skrifstofu Maður1: Ertu búinn að ná eitthvað í hann Hemma? Maður2: Nibb! Það er alltaf á tali hjá honum! framhald síðar
@ 13:27 Vá ég var að kynna mér þetta Hörpu Hreins barnaland mál. Ansi stórt í sniðum. Ég held með Hörpu. Kalt mat á aðstæðum; einhverjar konur með fæðingadepurð og lyklaborðsgremju ásamt talsverðum rökhugsunarbrest fá útrás á fyrirmyndarkennara fyrir að blogga um líf sitt. Svo allt sé klárt er ég ekki að gera lítið úr þunglyndi. Bara almennri depurð og aumingjaskap. Leyfum Déscartes að ljúka þessu með orðunum 'ég blogga, þess vegna er ég'.
@ 13:18 Néjar fréttir! Nú fer hver að verða síðastur að gjósaaa!!
@ 12:50 Nú fer hver að verða síðastur að tína sveppi. fimmtudagur, september 01, 2005
@ 19:19 Afhverju segja sumir 'njúklír veppons' en aðrir 'núkjúlar veppons' ???
@ 19:00 Ég blogga, þess vegna er ég.
@ 15:58 Ég verð að spila í Stapanum fimmtudaginn 8. sept ásamt Óla Ofur. Ég hvet alla sem fíla house í sínum breiðasta skilningi að mæta og reyna að pikka upp suðurnesjabitches eða hermenn. Peace. jonfri plötusnúður
@ 13:31 Tvær kókir í dósir.
@ 13:04 Ég geri ráð fyrir að fara ekki að vinna á leikskóla. Þangað til í morgun var samt gert ráð fyrir að ég myndi mæta klukkan eitt. Þar var ég ekki hafður með í ráðum. Vefatómstöðin veit að allir lesa sig þannig að ég ætla ekki að kafa dýpra í þetta. Annars koma mömmurnar af barnaland í múðrið og Guðmundur Steingrímsson hefur þann atburð dagsins að háði og spotti í hinum beinskeitta Kvöldþætti. Drykkur dagsins? Tvímælalaust tvær kók í dós. |