laugardagur, apríl 30, 2005

@ 15:07
Akranesbær og Ríkisféhirðir löggðu málstað Linux mörgæsarinnar lið í gær með rausnarlegum peningagjöfum.

föstudagur, apríl 29, 2005

@ 23:03
Hjólað heim úr vinnunni.

Á mettíma og er fullur af slími.

@ 13:10
Linux mörgæsin vansæl!

Í viðtali við vefatómstöðina staðfesti Linux mörgæsin að hún væri svolítið vansæl. "Þegar ég tók að mér að vera Linux mörgæsin var mér sagt að þetta yrði heitasta stýrikerfið eftir nokkur ár. Það hefur ekki gerst!" sagði Linux mörgæsin bitra.

"Það er farið illa með mig. Það er stafrænn pandabjörn hérna sem hefur tvisvar áreitt mig kynferðislega og svo er ég neydd til að horfa á forritarana keppa í mörgæsaleikjunum á risaskjá."

Vefatómið ræddi við Jón Baldvin sendiherra Íslands í Finnlandi um að hugsanlega gæti mörgæsin sest að hérlendis. Bjarni Benediktsson formaður alsherjarnefndar hefur þegar tjáð sig um málið og sagði að ógerlegt væri fyrir Íslendinga að veita mörgæsinni hæli því það ylli óafturkræfu ósamræmi í hælisveitinum.

Þessu algjörlega ótengt, að þá hefur Bobby Fischer hafið störf hjá veisluþjónustu sem sérhæfir sig í veitingum fyrir ýmis konar hæli.

Vinir Mörgæsarinnar eru farnir af stað með söfnunarátak, samskot leggist inn á tékkareikning 1388 í KB Banka Akranesi (0330). Fjármunirnir verða notaðir til að birta heilsíðuauglýsingu í Washington Post þar sem athygli verður vakin á málstað Linux mörgæsarinnar.

fimmtudagur, apríl 28, 2005

@ 17:23
Vefatomid spyr Landsbankann: kann fallegt folk bara ad spara?

- sms færsla jonfri

@ 13:29
Hvað er málið með að vera með bændaflokk sem vill bara stóriðju og frjálshyggjuflokk sem er alltaf að leggja fram fáránleg frumvörp sem brjóta gróflega á friðhelgi einkalífsins? Og þessir flokkar mynda ríkisstjórnina. Ekki það að ég sé á móti stóriðju þannig séð, púlla ekki Ögmund á þetta, finnst bara skrýtið að bændaflokkur reyni ekki frekar að hagræða í landbúnaði eða eitthvað.

Varðandi þetta fjarskiptafrumvarp. Vita það kannski flestir, en það á að skrá öll símtöl, sms og IP tölur (hverju maður tengist og hverjir tengjast manni) auk þess sem það verður að skrá alla nýja farsíma (semsagt bannað að vera með óskráð frelsisnúmer). Svo geta opinberir aðilar gramsað í þessum gögnum til að athuga hverjir séu glæpamenn. Það er allavega hugsunin. Ég skil það sjónarmið. Ég myndi ekkert endilega kippa mér upp við að það yrði bannað að vera með óskráð frelsisnúmer. Þar finnst mér meðalhófs vera gætt, þá gætu fíkniefnasalar og aðrir glæpamenn ekki verið með óskráð númer, og ef lögregla gæti lagt fram rökstuddan grun um að Hr. X væri glæpamaður myndi dómari kannski leyfa henni að hlera.

Að skrá öll þessi gögn er hinsvegar bara þvæla, eins og td. Persónuvernd hefur bent á. Ekki alveg jafn mikil þvæla og frumvarpið um hleranir án dómsúrskurðar en helvítis þvættingur samt. Mér finnst það liggja á borðinu að þegar svona víðtækar heimildir eru veittar þá verði þær misnotaðar. Fyrir utan það að Escobar átti hvorki gemsa né tölvu þegar hann var að byrja að sölsa undir sig kókaínmarkaðinn í Bandaríkjunum og flutti inn 80% af öllu kókaíni sem kom þangað. Á late disco tímabilinu nota bene! Þannig að glæpamenn munu finna sér aðrar leiðir til samskipta, verður þá næst lögga á öllum kaffihúsum sem gengur á milli og athugar hvað fólk er að tala um? Hljóðnemar undir almenningsbekkjum? Staðsetningartæki í bílum? Sömu aðgerðir bara stigsmunur, spáið í því.

Átta mig ekki alveg á þessu ,,,

@ 12:11
Gaurarnir hjá Wulf vita hvað þeir syngja !

Tékk this hnjé hnjé

@ 01:13
Djöfull var gaman að smassa þessu fulla vatnsglasi á eldhúsgólfinu um miðja nótt.

Næstu eins gaman og þegar ég gleymdi að mæta í stuttbuxum í leikfimi í 8 ára bekk.

miðvikudagur, apríl 27, 2005

@ 15:28
Foreldrar með þroskaheft börn eru svo sannarlega hetjur hversdagsins !

þriðjudagur, apríl 26, 2005

@ 12:28
Össs, gleymdi alveg að djammblogga.


Fór á Prikið með Gus eftir gig. Þið vitið hvað ég verð alltaf mökkölvaður og vitlaus, og þarna voru ekki gerðar neinar undantekningar.

Það var löng röð sem ég tróðst framfyrir í afþví ég var ölvuð hetja. Ég hafði aldrei komið á Prikið og vissi varla hvar ég var staddur, kannski útlöndum? Fann bar. Magic & jager, ekkert sprite eins og mér var misboðið á Nasa. Magic!

Drakk svona fimm svoleiðis og þá kom Dóri DNA, "heeyyyyy! Búnaðarbankinn!". Bjóst við lúmsku minimalísku orðaskaki, við erum jú rivals. Það varð alls ekki raunin. Dóri reyndi að kaupa vefatómstöðina! Fyrir LP-inn hans Sesar A á vínyl og þrjúþúsundkall. Óóóónei ekki að fara að gerast sagði ég, og þá eipshittaði hann bara! Kjarri kamóflag fór að bítboxa og Dóri að battla mig í kaf ! Krafðist lyklanna að vefatóminnu og var með dólg.

Hafðist ekki betur en svo að ég hljóp niður á Palace, faldi mig undir borði og bað Grétar að passa mig.

Boðskapur sögunnar er að brennivín er dýrt en vefatómið er samt ekki til sölu!

mánudagur, apríl 25, 2005

@ 15:53
Jonfri - Bumpy ride !

tracklist:

01. hot toddy - mind trip / winding roads
02. secret stealth - stealth 1 / bear funk
03. brett johnson & dave barker - no pictures please / aestocretic
04. mayfly - shogun / breastfed
05. the beard - for me (martinez remix)
06. die elfen - boy (balerik edit) / cdr
07. ?
08. silver city - elastic / 2020 vision
+ frímannsky sugaloops
09. will saul - digital watch / simple
+ cybrodelic loops
10. solu music artist - (crazy penis dub)
11. danny howells - sexmachine / sex on wax
12. muttonheads -smashing music / serial
13. barry bond - ripple /
14. ?
14. casco - cybronatic love (jonfri dub edit) / cdr

sækja syrpu!

mér finnst þetta skíturinn í danstónlistinni í dag tékk it!

laugardagur, apríl 23, 2005

@ 20:24
Maður þarf helst að hafa horft aðeins á Seinfeld til að fatta vefatómið, allavega stundum.

Ég fékk 1&2 seríu á DVD í gær!

Þrefalt húrra fyrir því!

Húrra!

Húrra!!

Húrraaa!!!

föstudagur, apríl 22, 2005

@ 20:50
Í fullkomnum heimi hefði færslan líka bara komið einu sinni.

From now on,,, Just take one dip and end it!

@ 20:50
Það voru tvær portúgalskar gellur að reyna við mig í rútunni á leiðinni heim úr bænum áðan.

Í fullkomnum heimi hefðu þær verið sexý.

@ 20:48
Það voru tvær portúgalskar gellur að reyna við mig í rútunni á leiðinni heim úr bænum.

Í fullkomnum heimi hefðu þær verið sexý.

@ 20:19
Hver þykist hann eiginlega vera?

,, svar í múður

@ 14:33
Nokkrar myndir frá Nasa hér.

Veit einhver um fleiri?

fimmtudagur, apríl 21, 2005

@ 16:13
I think Whatley converted to jeudism just for the jokes!

og mynd þessu tengd.

miðvikudagur, apríl 20, 2005

@ 11:31
Gus Gus í kvöld. Ég er hress.

Þetta fyndið.

Bless.

sunnudagur, apríl 17, 2005

@ 16:42
Carly Simon - You're so vain

Er á vefatómsútvarpinu, las einu sinni að það hefði einhver borgað 100.000 $ fyrir að fá að vita hver væri svona hégómagjarn. Undirritað trúnaðareið og allt, mátti ekki segja neinum.

Heyrði líka að þetta væri um Warren Beatty en það er ekki jafn góð saga, las hitt líka í Morgunblaðinu.

OG MORGUNBLAÐIÐ ER SÁ PRENTMIÐILL SEM FLESTIR ÍSLENDINGAR TREYSTA ... bara svona ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum.

@ 16:38
Foreldrafélag Grundaskóla ályktaði eitthvað um daginn að Strákarnir væru frá djöflinum.

Mér finnst að allir foreldrarnir í félaginu ættu að foreldrast og horfa á sjónvarpið með krökkunum og hjálpa þeim að greina rétt frá röngu.

Svo, ef þið pælið í því, þá eru Tommi og Jenni mun nær því að vera frá djöflinum. Það er full on blast ofbeldi alla myndina, stundum eru þeir vinir en þá er alltaf eitthvað freaky motive fyrir vinskap.

Að lokum vil ég taka fram að ég er karlmaður á þrítugsaldri.

@ 10:16
Þetta er hugsanlega langbesti diskur í heimi. Harvest moon, Grace, Moon safari, Melody A.M. og Urban hymns fylgja fast á hæla... og Leftism!

@ 10:06
Humm já mér tókst alveg að verða fullur alveg eins og í öll hin skiptin sem ég hef reynt það, þó ég hafi ekki farið í ríkið. Ég er nefnilega sæmilega bjargálna þessa dagana, en sénsinn að ég ætli í heimabankann að taka saman hvað ég eyddi miklu!

Gróft mat er svona átta þúsund en það er nokkuð á reiki samt.

Sjáumst á Gus !

laugardagur, apríl 16, 2005

@ 15:13
Ég held ég hafi aldrei farið í ríkið á laugardagi þegar ég hef ætlað. Allavega ekki í dag og öll hin skiptin.

@ 01:20
Ok ég viðurkenni það, ég er smá bitur yfir að hafa ekki farið í tónlistarskóla þegar ég var lítill.

En þegar ég var lítill var ég samt alltaf að syngja fyrir söngkennara frænku minnar. Hún hét Guðmunda og var ein krúttlegasta kona sem ég hef séð. Hún sagði að ég væri lagvís.

Kannski var ég lagvís eða kannski var hún bara svona yndæl. Hugsanlega bæði. Ég er örugglega frekar taktvís en lagvís, en er orðinn ágætur í að blanda saman réttum melódíum.

Vonandi blanda ég saman réttum melódíum á taktvissann máta nk. miðvikudag, það væri sætt eins og baka.

Kannski ball á morgun, það er allavega fín afsökun fyrir Jagermeister í Magic !

Vefatómstöðin kveður, farinn að fikta í tónlist.

miðvikudagur, apríl 13, 2005

@ 11:59


úje!

:)

mánudagur, apríl 11, 2005

@ 13:29
@ Nasa 20. apríl

GUS GUS (live)

+ DJ's Jonfri & Óli Ofur


mættu!

sunnudagur, apríl 10, 2005

@ 18:30
Úje, uppáhalds dj-inn minn (Desyn Masiello) opnaði settið sitt í gær á re-editi sem ég gerði, og er víst bara alltaf að spila það!

@ 14:44
so easy to laugh so easy to hate, it takes strenght to be gentle and kind ...

laugardagur, apríl 09, 2005

@ 18:10
É vabbarað djóka meeeen!

Í öðrum fréttum er það helst að áðan ákvað ég af ákafa að fara að kafa eftir safa handa afa.

föstudagur, apríl 08, 2005

@ 04:01
Djöfull er Gunnar í Krossinum á ystu nöf í rökræðunum, þvílík þvættingsrök sem hann er að beita fyrir sig.

Talaði fyrst um rannsóknir virtra vísindamanna sem sýndu fram á að það væri hægt að 'afhomma' menn. Svo sagði hann að þetta hefði verið rannsókn, fyrsta rannsóknin sem sýndi fram á þetta, og hann nafngreindi engann vísindamann. En þetta vakti víst heimsathygli sagði hann, varð ekki var við það. Fylgist samt talsvert með fréttum af þessu tagi þegar ég reyni að vera upplýstur.

Já og vísindamaðurinn notaði samtalsþerapíu ha ha ha, sálfræðinördadjók

@ 03:37
Fyndið hvað ég skipti æfi minni upp í tímabil. Meðan á tímabilinu stendur er ég ekkert að spá að það sé tímabil svo seinna, þegar eitthvað minnir mig á það, fatta ég tímabilið, tilfinninguna og hvað ég var að pæla.

@ 02:01
Ég fór á Baggalút.

Er verið að djóka í mér með að iðnaðar og viðskiptaráðherra sé svipað mikið menntuð og ég. Liggur við að ég komist í uppnám og ásaki D&H um að velja sér leppstjórnendur. Ætla ekki samt.

Hlýtur samt að vera eitthvað í hana spunnið fyrst hún náði sér í ráðherrastól með þennan akademíska bakgrunn.

miðvikudagur, apríl 06, 2005

@ 21:09
... they've downgraded me to some sort of a bunker! Its like hitlers last days here ....

i'm like a weed jerry!

i thought you were like hitler in the bunker

i'm a weed in hitlers bunker

okey 'im a little uncomfortable with the hitler stuff ...

@ 20:40
Vefatómstöðin er rúmlega eins árs. Skemmtilegt.

@ 14:46
Allt að ske!

@ 12:30

Vid erum veikir og byggdum hus.

Myndina sendi jonfri

þriðjudagur, apríl 05, 2005

@ 23:38
Ég kenni Bobby Fischer um veikindi mín. Hann setti sýkla í þvottaefnið!

@ 18:32
Vefatómstöðin er lasin!

sunnudagur, apríl 03, 2005

@ 05:40
Vefatómstöðin er rokkstöð! og ég er fullur, atugið það folks!!! Dj Maren (DJ mega mazz 3000 - mum i want beefcake!) er gellan yazoo og svona geggjað.

ég er of fullur til að vera ábyrgur skrifa minna peace out

This page is powered by Blogger. Isn't yours?