föstudagur, apríl 30, 2004
@ 20:53 Kominn med sumarvinnu! - sms færsla jonfri
@ 18:53 Það munaði ekki miklu að ég hefði étið hvíta klessulitinn minn í misgripum fyrir nammikrít. Var kominn með hendina í viðbragðsstöðu.
@ 18:29 Það er eins með Frímannsson og með bróðir Rofzky, það fer hver að verða síðastur að ráða Frímannsson í sumarvinnu.
@ 15:53 Spilaði Street Fighter II. til fimm í gær. Pistill væntanlegur.
@ 01:14 Er @ Safamýrin. Verið er að elda samlokur. Bíð spenntur. fimmtudagur, apríl 29, 2004
@ 18:08 Einhvern veginn tókst mér að rekast á þetta á netinu. Finnst þetta helvíti skondið.
@ 17:32 ![]()
@ 17:05 Ég ætla að hnýta flugur núna. Einhverjar svona andskoti líklegar vor-flugur.
@ 16:42 Íslensk danstónlist er einhvernveginn svo alveg algjörlega málið. En þetta certificate kjaftæði sem tölvan mín er að púlla er að sama skapi ekki málið. miðvikudagur, apríl 28, 2004
@ 19:41 LAG DAGSINS ER MÓÐINS! Allt töff fólk er með lag dagsins. Ég líka. Eastwest Connection - The more I get, the more I want (Teddy's house groove)
@ 19:38 Ég var eitthvað að skjóta sjálfan mig niður fyrir settið sem ég tók á Breiðinni um daginn á undan Palla. En jafn Breiður hlustunarhópur og Hreinn eigandi, Gummi Valgeirs og allskonar ÞÞÞ bílstjórar og fylgdarlið var í groovi. Sem er gott. Spilaði hiphop, eighties, rapp, disco, breakbeat og house. Kannski var þetta ágætt.
@ 19:08 Já og svo vek ég máls á því að Orri Harðar er manna síst í g-fönkinu svokallaða. Er samt að hlusta á lag með honum núna, ágætis stöff. Kúl arrangement á vókalnum.
@ 19:06 Er munur á því að vera langrækinn og að vera lengi að fyrirgefa eitthvað?
@ 18:56 Djöfull líður mér fuckin vel núna, ótrúlega góð tilfinning fyrir öllum hlutum.
@ 18:10 Ég skrifaði nú einhvern texta í þessar sms færslur, leitt að hann skyldi ekki hafa komið með.
@ 11:39 - sms færsla jonfri
@ 11:05 - sms færsla jonfri þriðjudagur, apríl 27, 2004
@ 22:32 Annað orðatiltæki tiltölulega nýtt í orðatiltækjaskrá þeirri er ég hef tiltæka. Að vera flashdancin' þegar einhver spyr mann hvað maður segir gott.
@ 21:32 Hvað ætli einn svona solid Vesturgötu ljósastaur kosti? Endilega kommenta á það.
@ 21:18 ER þetta bongó blíðan svokallaða?
@ 17:09 Logreglan stopp fyrir utan Apotekid. Ekkert groundbraking i gangi samt, eg vissi fyrir longu ad fimman vaeri upp til hopa had Kodini. - sms færsla jonfri
@ 16:08 Frábært. Keypti bara óvart innistæðu fyrir 2.000 í heimabankanum. Græddi lítið á því, því ef maður keypti fyrir 1.000 fékk maður 1.500 kr innistæðu. Þar sem ég er talnaglöggur maður með verslunarpróf sé ég strax í hendi mér að betra hefði verið að kaupa sér tvisvar innistæðu fyrir 1.000 og eiga þá 3.000.
@ 02:50 Þetta var indælt. mánudagur, apríl 26, 2004
@ 23:17 Agaetlea dagsfarprudur dagur i dag so far... - sms færsla jonfri
@ 20:08 Gedveik kokomjolk i Skutunni! - sms færsla jonfri
@ 15:48 I gær keypti eg bensin fyrir slettar 850 kronur. - sms færsla jonfri sunnudagur, apríl 25, 2004
@ 18:05 Samt er þetta eiginlega bara gluggaveður.
@ 16:44 Litli bró er á góðri leið með að verða plötusnúður. Hann skratsar, dansar í takt, öskrar með og veit ekkert skemmtilegra en að fá að taka í græjurnar.
@ 16:43 I went to the other side with hi.
@ 15:38 Gott veður!
@ 00:42 Buinn ad spila. Engir monitorar og gruggugt sound med massa delay. Eg suckadi en fin aefing. - sms færsla jonfri laugardagur, apríl 24, 2004
@ 19:51 Ég fór til spákonu. Eftir viðtalið fékk ég að vita að í fyrra lífi hefði ég verið baðskilnaðarsinnaður Baski.
@ 04:42 Ég er svo þreyttur að ég sit varla í rassinn. Talandi um að geta ekki sofið.
@ 04:37 Ekki má gleyma því að ég gaf Palla mixdisk með mér, íslenskt bootleg mix af milkshake með kelis og re-editið sem ég gerði af Kate Bush - Running up that hill. Ég talaði meira við Palla en chix á ballinu. Segir það eitthvað og kransakökudæmið eitthvað? Endilega farið með það í Njallana (no pun) og látum þá leggja saman tvo og tvo. Leibbi hommi og Nonni hommi báðir með Ryu fettish! Flottir gaurar.
@ 03:59 Vitiði afhverju Tommi og Gústi eru farnir að sjást minna á Mörkinni? Ég veit það scoop! Þeir slógust við Jóa eiganda... Ég var að fá þetta sent á stafrænu formi, sjóðheitt!
@ 03:56 Ég spilaði alveg hip hop, house, deep house, techno, breakbeat, techno, pop, progressive ... Palli var þó töluvert fjölbreyttari en Frímannsson.
@ 03:20 Ég er kominn á 15 mínútu og þetta er helvíti gott so far! Upptakan það er.
@ 03:02 JÁ ÉG GLEYMDI AÐ SEGJA AÐ ÞETTA VAR GEÐVEIKT HLJÓÐKERFI!!! MARTEINN Í MP HLJÓÐKERFI ER MAÐURINN!!! Hann kenndi mér alveg helling um sound á svona fimm mínútum! Og svo fékk hann kjöltudans frá annarri dansmeyjanna, og kleip í bossa! Sem væri ekkert sérstaklegafyndið ef gaurinn væri ekki svona 40 ára.
@ 02:51 Spilaði með Páli Óskari áðan. Myndi setja tengil ef síðan hans væri virk. En þetta var ljúft. Það vantaði mónitora sem er fagorð yfir hátalara sem listamaðurinn notar til að heyra í sjálfum sér. Það bitnaði aðeins á taktinum, sé til hvort ég upptökuna þetta á netið. Annars vorum ég og Palli getting it on og hann var impressed og bauð mér að spila með sér á morgun. Ég þáði.
@ 01:56 Sylvia Rudolfs er alveg ad dansa. - sms færsla jonfri föstudagur, apríl 23, 2004
@ 18:46 Ef að valið stæði á milli þess að maka sig eða borða kransaköku myndi pottþétt borða kransakökuna og redda mér sjálfur.
@ 12:52 "Vefatómstöðin, hröð og persónuleg."
@ 04:11 "Vefatómstöðin, líka á nóttunni." fimmtudagur, apríl 22, 2004
@ 23:27 Búinn að installa Sound Forge 7.0 aftur.
@ 23:20 Ég er alveg að detta.
@ 21:41 Hey! Ég er karlmaður og segi nei við nauðgunum. Líka við nauðgurum, og raðnauðgurum.
@ 13:00 Gleðilegt sumar!
@ 04:56 Texti ur einu besta house lagi fyrr & sidar! - sms færsla jonfri
@ 04:56 Dancin' and pancin! Groovin' keep on movin! Flying stop your cryin! Choosin' while ya cruisin! Music is the answer, to your problem - keep on movin .. - sms færsla jonfri miðvikudagur, apríl 21, 2004
@ 20:04 Andri litli er svo mikil snilld. Hann vill alltaf koma með mér niður í vistarverur mínar, en kemst ekki fram hjá hliðinu. Hann stendur oft með útréttar hendur og dúllulegann svip þegar ég er að fara niður, grenjar smá og vill koma með. Auðvitað er ekki annað hægt en að taka hann með öðru hverju! Hérna niðri finnst honum geðveikast að spila klúbbatónlist. Hann vill helst fá að fikta í græjunum og svo hreyfir hann hendina í takt með lögunum, svona eins og ég geri stundum ósjálfrátt. Algjör gæji. Þyrfti að ná þessu á vídjó. Annað sem hann gerir er að leika sér með kertastjakana og kertin hérna á borðinu. Hann raðar þeim upp, færir þá til, snýr þeim á hvolf og svo framvegis. Núna er hann að sturta sprittkertum milli stjaka. Alger snillingur! Verður tveggja ára 31. apríl.
@ 14:44 Tad verdur einhver ad fara ad binda enda a tessa X-18 skoutsolu adur en Akranes verdur verst skoada baejarfelag a landinu! - sms færsla jonfri
@ 14:12 Vatnaskil i afengisverslun! Engir rimlar a ATVR a Akranesi lengur. - sms færsla jonfri
@ 13:08 Að fara í Þrumuna og segja vinum sínum svo sérstaklega frá því til að afla sér viðurkenningar er ekki töff. Vona að sem fæstir stundi þetta.
@ 12:55 Frábært. Borðlampinn sem ég hef átt í rúmann áratug losnaði af festingum sínum og datt beint á tölvuskjáinn minn. Blessunarlega kom bara smá rispa.
@ 04:39 Ég er að hlusta á þögnina. Hún er stundum rofin af fuglasöng. Afar fallegt.
@ 04:13 Langar að þakka öllum vinum mínum fyrir að vera frábærir. Þið vitið hverjir þið eruð.
@ 03:52 Eftirtaldir geisladiskar fást gefins ef nýjir eigendur gefa sig fram: MMore Knight Rider Full Version tölvuleikur (Racing, Action, Adventure game) Outkast - Stankonia Chilluð hús músík! 'Mp3 Mix' Led Zeppelin Remasters II. Trúbrot - Lifun Led Zeppelin - Remasters I. Gerið ykkur samt engar grillur. Diskarnir koma án hulsturs og eru sennilega rispaðir. Frestur til að gefa sig fram sem nýr eigandi er 46 klukkutímar, varningnum verður að öðrum kosti fargað.
@ 03:42 Tölvan mín geymir tæplega 100.000 gagnaskrár. Samkvæmt Lykla-Pétri er engin þeirra sýkt af veiru.
@ 02:57 ![]() Ég var búinn að pósta link á auglýsinguna, en finnst hún svo brjálæðislega vel heppnuð að ég birti snilldina svona líka.
@ 02:53 Beats International - Dub Be Good (Endless Days Mix) Þetta lag er að gera skítinn þessa dagana. Lag eftir Norman Cook (aka. fatboy slim, pizzaman, migthy dub katz ...) frá árinu 1990. Íslenskt bootleg mix! Eftir Úlfar, sem er nafn til að fylgjast með. Veit ekki hvort það sé þessi hlýa bassalína, þessar léttu trommur, chordarnir eða þessi æðislegi söngur sem er að gera það fyrir mig. "Sennilega einhver blanda". Elska að mixa þessu lagi inn, byrja á bassalínunni og vinna mig svo áfram, og helst að láta skiptinguna fljóta í svona 3 mínútur. Þetta er eitthvað sem ég sleppi lausu á mínum komandi 'giggum', engin spurning.
@ 02:30 Ég er ábyggilega búinn að uninstalla svona fimmtán gagnslausum forritum í kvöld.
@ 00:06 Það er alveg magnað hvað Sound Forge 4.5 gefur sér betri tíma í alla hluti en Sound Forge 7.0 Spurning um að installa 7.0 aftur. þriðjudagur, apríl 20, 2004
@ 21:14 Ég er hjátrúarfullur. Þegar ég fæ mér te, og það myndast loftbólur sem fljóta ofan á rjúkandi vatninu reyni ég ávalt að ná þeim í skeiðina. Takist fólki svo að setja loftbólurnar upp í sig áður en þær springa, þá má það eiga von á bréfi morguninn eftir.
@ 19:44 Þau áform runnu í sandinn.
@ 19:43 Ég er í þessum töluðu að útvega mér Dj Kicks mixdiskinn með Kruder & Dorfmeister.
@ 19:17 Húrra. Bleikar fiskibollur í matinn! Bleikar fiskibollur hafa undanfarið átt á brattann að sækja sökum samkeppni við gular fiskibollur, en í kvöld eru þær bleikar. Til veislu!
@ 14:08 Eftir að hafa hlustað margsinnis á lærða menn ræða við mig um kíkvarðrat, er ég samt engu nær.
@ 02:34 Sallí frænka mín er ein af betri sálum heimsins. Ég ætti að vita það, sálfræðigutti sem hefur þekkt hana alla sína æfi. Hún átti sumarbústað á Valbjarnarvöllum í Borgarfirði með manninum sínum, Jonna heitnum. Þetta var A-bústaður, frekar lítill með grænu þaki og féll vel inn í birkigróna hlíðina. Engin nútímaþægindi fyrir utan svart-hvítt 12 volta sjónvarp. Tvær kojur, hornsófi, lítið eldhús, enn minna salerni og miðstöð. Á efri hæðinni var svo svefnpláss þar sem við krakkarnir sváfum. Ekkert geðveikt, samt geðveikar minningar! Ég man hvað mér fannst pabbi svalur að keyra yfir ánna í staðinn fyrir að fara yfir brúna. Mamma bakaði bestu jógúrtkökur fyrr og síðar. Fanney meikaði alltaf að chilla þótt ég væri sífellt að stríða henni og Erna var algjör krúsídúlla! Magnað hvað sumir hlutir eru ómetanlegir.
@ 01:00 Það var ótrúlega einfalt að gera áðurnefnda raf-auglýsingu. Tók mynd af Ashanti og lét myndina verða að 2 algengustu litunum í henni. Það eru þessir rauðbrúnu tónar sem eru í bakgrunni. Svo skreytti ég aðeins með því að nota magic vöndinn, copy paste og paint bucket. Að lokum fyllti ég í ljósbrúnar eyður á því svæði sem textinn kom svo á. Ótrúlega einfalt, þarft bara hugmyndaflug .. og auðvitað paint bucket.
@ 00:48 Bjó þetta til áðan. Nokkuð hnellið er mitt álit. mánudagur, apríl 19, 2004
@ 23:40 Ég er eiginlega mest að spá í tónfræði þessa dagana.
@ 23:29 Street Fighter II. persónur, III. hluti
Blanca ![]() Frá Braselíu kemur bardagakappinn Blanca. Hann berst á trébryggju, sem ég held að sé við Amazon fljót. Hversu mikil klisja er það? Blanca hefur mikinn fjölbreytileika í kýlingum og spörkum. Hann situr lágt niðri og er snöggur að öllu. Hann getur skotið sjálfum sér með því að labba aftur á bak í tvær sekúndur og skjóta sér svo, en oft nær tölvan að vera fljótari að þessu. Ágætis bragð. Hann getur líka beygt sig niður og gefið öllu sem snertir hann rafstraum. Rafmagnsbrellunni má verjast með einföldu neðanjarðarsparki. Í nágvígi getur Blanca bitið mann í höfuðið. Það reynist honum oft ansi drjúgt og andstæðingurinn missir mikla orku. Svo er það sem gerir Blanca erfiðann, er að tölvan getur farið í ham með honum. Þá er ansi erfitt að verjast honum, en lykilatriði að halda ró sinni. Hann gæti náð manni einu sinni í ham, en ekki tvo bardaga í röð. Nema maður sjúgi lim. Í heildina ... ég myndi ekki vilja mæta Blanca að næturlagi í ham, en tek hann í Street Fighter; 2-1 auðveldlega.
@ 20:23 Kate Bush - Running up that hill (jonfri live edit) Stórskemmtilegt ...
@ 02:30 Ég held að flestir geti sammælst um það að hann Bóka-Markús sé snillingur.
@ 01:22 Ég leita eftir áliti lesenda. Málið er þetta, ég hef innleitt orðið 'jive' sterklega í minn orðaforða, og í dag notaði ég orðið 'clive' tvisvar. Nú spyrj ég: Er það of mikið að vera með 'jive' og 'clive' í gangi bæði í einu?
@ 00:32 Tess ber ad geta ad Erna var bara 4-5 ara tegar hun var ad mala mig i Disney spilinu goda. - sms færsla jonfri
@ 00:30 Eg man hvad mer fannst Erna systir vera klar tegar hun vann mig hvad eftir annad lettilega i minnisspili. Hun stod sig lika rosalega vel i kirkjunni i dag. - sms færsla jonfri sunnudagur, apríl 18, 2004
@ 22:14 Hurra! Eg fekk mer afengisbrennivin i dag og tad var felagslega vidurkennt. - sms færsla jonfri
@ 21:23 Do you like apples? Yeah... Well! I got her number! How do you like them apples? Kvikmyndagetraun Jóns. Verðlaunin eru af gamla skólanum; aðeins heiðurinn.
@ 17:46 Min elskulega systir Erna Frimannsdottir stadfesti skirnarheitid i Akraneskirkju adan. Fermd! Til hamingju elsku Erna!!! :-) - sms færsla jonfri
@ 15:51 Leifur Jónsson, Leifur Jónsson! Jón Frímannsson þarf að ræða örlítið við þig um hljómfræði, kannski með kvöldinu. laugardagur, apríl 17, 2004
@ 23:30 Mer finnst bædi eineygda og japanska gellan i Futurama vera damn foxy! - sms færsla jonfri
@ 18:05 "... svo sem SMS-blog" er nokkuð sem ég hefði aldrei getað komist óbjagað frá talfærum mínum fyrir 10 árum síðan.
@ 18:04 Ég fékk margar sniðugar blog-hugdettur í gærkvöldi. Leiðinlegt að hafa ekki átt innistæðu þá, og geta nýtt sér hátæknilega fjarskiptamáta, svo sem SMS-blog.
@ 16:48 Orð götunnar er að ég gangi um knattspyrnuvelli og gefi fólki olnbogaskot. Gekk á fund ógóðs félaga míns í gær og reyndi að leiðrétta slíkann misskilning. Það fékk ekki góðar viðtökur. Andlegur þroski og heimspekingalegt kenningakerfi þessa ágæta manns virtist vera hálf fertugt, svo ég gafst upp. Enda er mér alveg sama þótt hann trúi mér eða ekki. Ég hef gert mitt. Restin er hans mál.
@ 16:20 Lokahóf körfuboltans var jive as fuck. Einkum karókíið. En margt annað kom einnig við sögu. föstudagur, apríl 16, 2004
@ 23:43 Þegar manni leiðist er oft gott að fallbeygja símanúmerið sitt.
@ 12:40 sms test blog #2 - sms færsla jonfri
@ 12:28 sms test blog!
@ 12:21 Þetta var sláandi. Ekki oft sem maður lendir í einhverju sláandi. En það gerðist nú samt í gær.
@ 01:18 Street Fighter II. persónur, II. hluti
Guily ![]() Hinn bandaríski Guily er bardagakappi í Street Fighter II. Hann berst á amerískum herflugvelli. Guily hefur góðar kýlingar og enn betri spörk. Hann getur td. tekið tvöfalt hringspark þegar hann er niðri. Hann er snöggur og lipur bardagamaður. Guily getur skotið 'sonic boom' skotum á mann. Til að gera það verður hann að labba í tvær sekúndur afturábak fyrst. Það gefur andstæðingnum svigrúm til að ætla að stökkva á Guily. En hann hefur það góðar hreyfingar að það er illviðráðanlegt. En það er hægðarleikur að stökkva yfir eða verjast 'sonic boom' skotum. Annað sem gerir það erfitt að stökkva að Guily er hin einkennisbrellan hans. Ef hann er niðri í tvær sekúndur getur hann tekið ofur-sparkið sitt, sem er ansi öflugt. Í heildina er Guily lipur bardagakappi með góðar hreyfingar. Einkenninsbrögðin hans eru jafnframt erfið viðfangs. Sá Street Fighter spilari sem ég vill síst mæta, er sá sem hefur töluverðafærni með Guily. fimmtudagur, apríl 15, 2004
@ 19:19 Stundum þá óska ég þess á svo ótrúlega einfaldann og barnslegann hátt, af öllu hjarta, að mamma væri ennþá á lífi. Óska þess svo heitt að mér finnst næstum svindl að ekkert gerist.
@ 18:35 Það er móðins að segja öðrum hvað maður er að hlusta á. Það er ein leið fólks til að leita eftir styrkingu, svo sem athygli eða lofi. Núna ætla ég að gera akkúrat þetta! Þannig er það nú bara. Bang Gang - Something Wrong - Snilld. Elskaði You á sínum tíma, en þessi er aðeins lyfjaðri og betri. Góðskítur. Arkestra One - Arkestra One - Arkestra One enduruppgvötva fegurðina á þessari breiðskífu. Air - Walkie Talkie - Búinn að vera með þennan af og á í nokkurn tíma, meira á samt, skiljanlega. Svo megnið af því sem Úlfar aka. tactik, endless days, deeper days, toybox,,, hefur verið að gera, nokkur Gus Gus remix, dj sett með Sean Cusick, Dire Straits, Clapton ... og margt fleira ...
@ 17:57 Nú er það svart. Ég fæ hvorki orða bundist né að ég hafi nokkra stjórn á geðhrifum mínum. Kannski að tvö glös af gini og smá beikon sé það sem þarf.
@ 17:12 ![]() Það verður ekki meira skó-blog en þegar maður skrifar um nýjustu fötin sín. Ég ætla samt að gerast svo djarfur. Var að versla mér þessa flík á veraldarvefnum. Þótt ég eigi sjötíu flotta boli þá kaupi ég mér samt alltaf frekar boli en buxur.
@ 00:57 Við erum að tala um líflegann fyrsta sólarhrings okkar nýja teljara - í boði Modernus. Slatta má samt skrá á mig, þegar ég hef endurhlaðið eftir hverja nýja færslu. Ég hef nefnilega þann háttinn á, lesendur kærir, að eftir að ég hef skrifað færslu í færslugluggann, sendi ég gögnin yfir vefinn. Þegar ég hef gert það á fullnægjandi hátt opna ég nýjann vafra og hleð síðunni þar inn, og les færsluna þar yfir. Stundum, eftir að ég hef lesið færsluna í nýja vafranum, kem ég auga á leiðir til að bæta skrifin. Þá geri ég það og sendi síðuna á ný yfir vefinn og endurhleð í nýja vefvafraglugganum. Þessi leið hefur reynst höfundi best við að koma blog-skrifum sínum sem best til skila, en hefur þó fyrrnefndann vankant; að skekkja teljarann örlítið. - Þessu skáletraða var bætt inn eftir að síðan hafði verið endurhlaðin í nýja vafranum. miðvikudagur, apríl 14, 2004
@ 22:10 ERT'EKK'AÐ KIDDA MIG?!?!
@ 22:00 Fór í heimsókn til frænku minnar áðan. Hversu heiðarlegt er það?
@ 20:40 Kannski ekki þeir einu, en þeir eru allavega ferskir.
@ 20:11 Árni E og Biggi Veira, saman sem Psychobitch eru einu íslensku plötusnúðarnir sem ég myndi bryðja pillur út af, væri staðan þannig.
@ 18:55 Þetta voru fyrstu páskarnir þar sem ég át ekki páskaegg mér til líkamlegs skaða. Skyldi ég vera að þroskast?
@ 17:03 Ég á leðurskó, rússkinnsskó, strigaskó og gúmmískó. Var úti á gúmmískónum. Mætti gaur sem var að dansa undir stýri. Í augnablik hélt ég að það væri Valur Birgirs. Undarlegt. Næsti ökumaður gaf mér skrýtið auga.
@ 02:35 Nýji Bang Gang diskurinn er svo dásamlegur að ég er með nístandi samviskubit yfir því að vera aðeins með gripinn á mp3.
@ 02:10 Kominn teljari í þetta kvikindi!
@ 02:06 Ekki nóg með að ég hafi tekið til á desktoppinum, heldur gerði ég mér nýjann bakgrunn. Go check out.
@ 01:15 Street Fighter II. persónur, I. hluti
E. Honda ![]() E. Honda er einn af þeim átta bardagamönnum sem hægt er að velja um í óbreyttri útgáfu af Street Fighter II. Hann er japanskur súmóglímukappi, og á sinn heimavöll í baðhúsi nokkru í Japan. Honda hefur hefðbundnar kýl- og spark hreyfingar sem duga ekki vel til að halda andstæðingnum frá sér bæði vegna þess hve seinn hann er og hversu stutt útlimir hans sveiflast. Í nágvígi er um tvennt að ræða. Honda getur kastað manni eftir jörðinni þannig að leikmenn skipta um hlið, sem getur oft verið gott. Honda getur líka gripið mann og kreist mann, en að gera það er happadrætti því stundum skilar það meira orkutapi en kast, stundum minna. Einkennisbrellur Honda eru einnig tvær. Hann getur gert áhlaup úr nokkurri fjarlægð, en til þess þarf hann að labba aftur á bak í tvær sekúndur og þá getur hann skotið sér áfram eins og flugskeyti. Gallinn við þetta er sá að gegn bardagaköppum sem geta skotið einhverskonar geislum að þá er þessi brella gagnslaus. Hin brellan eru ofur hraðar handahreyfingar. Í nágvígi eru þær ekki auðveldar viðureignar. Í fjarlægð er sú brella fánýtt drasl, einkum ef andstæðingurinn getur skotið geislum. Honda er seinn, með frekar lélegar kýlingar og spörk. Hann getur skotið sjálfum sér úr fjarlægð en það er hægðarleikur að verjast því, einkum ef maður getur skotið geisla á móti. Í nágvígi er hann sterkur með ofur hröðum kýlingum en hann er seinn og kemst ógreiðlega nálægt andstæðingi sínum. Í grófum dráttum er niðurstaðan sú að ég myndi rústa E. Honda hvenær sem er. þriðjudagur, apríl 13, 2004
@ 22:26 Ég tek við áskorunum í Street Fighter. En ég er alltaf Ryu, kann öll brögðin og er ósigrandi.
@ 13:43 Ef þú ert einhverntíma hugsi um hvar mig sé að finna þá má útiloka tvo staði strax. Felix og alla staði sem spila salsa.
@ 13:36 Veistu hver átti þennan bíl á undan mér? Helgi Björns! Ímyndaðu þér bara hvað hann hefur skverað margar kjellingar hérna aftur í félagi! Jáh! Nú mega þær sko fara að vara sig á kallinum.
@ 03:20 Það að vera plötusnúður er ekki bara að mæta á staðinn með einhverjar plötur og spila þær í handahófskenndri röð. Eða jú, kannski er það líka að vera plötusnúður. mánudagur, apríl 12, 2004
@ 20:26 Aldrei skal ég vera með neitt andskotans helgarsprok eða annað þess háttar, eins móðins og það kann þó að vera.
@ 17:21 Ætli túlkun Madonnu á Evu Peron hafi verið raunsönn? Er tilfinningaþrungna sönglagið 'Don't cry for me Argentina' kannski Eva Peron í hnotskurn? Þetta er eitthvað sem má velta fyrir sér. sunnudagur, apríl 11, 2004
@ 20:04 "Það er betra að forðast beituna en snúast í snörunni." Málshátturinn minn... Sönn speki hér á ferð.
@ 15:12 Geir minn réttsýni félagi og sósíalisti þvingaði mig til að gera hreint fyrir mínum dyrum. Það var semsagt hann sem fann Violent Femmes lagið. Ég átta mig á kúl-missirnum við það að ætla að þykjast hafa fundið lagið sjálfur, þegar upp kemst að það var aðeins fals og lygi. En vinátta mín við Geir er mikilvægari en stundarfróun og hégómagirnd sú sem reynt er að fá með blog-skrifum.
@ 15:02 Það er til Violent Femmes lag sem tvítekur gælunafn mitt bæði í titli og texta. Stafsetningin er örlítið frábrugðin, en að öðru leiti er þetta eins. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að taka þessu. Held það sé best að ákveða það þegar ég er búinn að drekka svona tvö glös af gini.
@ 14:46 Ég er kominn með nýtt orðatiltæki. "One jivin' of a motherfucker!" Tilraunir á því eru þegar hafnar og ganga vel. Þú sást þetta fyrst hér, mundu það.
@ 13:10 Klukkan er tíu mínútur yfir eitt og ég ætla fram úr rúminu.
@ 13:00 Ég er ekki alveg viss hvernig ég myndi taka á því ef Danny Glover ætti í kynferðislegu sambandi við systur mínar.
@ 12:31 Það hafa verið páskar í nokkra daga núna, en þeir skullu almennilega á í dag. Óska öllum hress-, fersk- og jiveleika í tilefni þessa helgidags. laugardagur, apríl 10, 2004
@ 19:46 Símon í toppformi: "... það fer í taugarnar á mér þegar menn tala um eitthvað sem þeir hafa ekki hugmynd um og mynda sér einhverjar svakalegar skoðanir. Það fer samt ekki í taugarnar á mér þegar ég mynda mér illa ígrundaðar skoðanir um menn og málefni og það helst út frá röngum forsendum. Enda er ég ekki frægur, gáfaður eða með sjónvarpsþátt. Þannig að mér leyfist að hafa illa ígrundaðar og fáranlega vitlausar skoðanir á öllu milli himins og jarðar. Það er frelsi hins heimska alþýðu manns. Það ætla ég mér að nota til hins ýtrasta." Frímannsson er algerlega á sömu línu í þessum málum.
@ 16:53 Í gær var ég að labba, mild ljósastaurabirtan endurpseglaðist af votri jörðinni og enginn var á ferli. Það rigndi örlítið og heyra mátti í dropunum falla til jarðar og vatninu dropa í göturæsin, það var hálf flóð og öldurnar lentu blíðlega á Langasandi, það var heiðskírt og stjörnubjart. Þetta var fucking augnablik. föstudagur, apríl 09, 2004
@ 21:00 Hvort myndir þú meika að chilla með; Bó, Rúnari Júl eða Gunna Þórðar?
@ 18:56 Ég var næstum því búinn að skrifa aðra færslu, en hætti við því ég náði ekki að koma hugsuninni nógu skýrt frá mér. Fannst rétt að láta lesendur vita.
@ 18:55 Í dag skein sólin og ég fór í göngutúr. Nú rignir og ég er inni að taka til. Rökrétt framvinda hegðunar í samræmi við veðurskilyrði.
@ 12:56 Allt í einu mundi ég eftir samtali sem ég átti þegar ég var 10 ára. Innihald þess voru vangaveltur um það hvort Marge eða Maggie væri að keyra bílinn í opnunaratriði Simpson þáttanna. Rök voru færð fyrir báðum sjónarmiðum en enginn niðurstaða fékkst. fimmtudagur, apríl 08, 2004
@ 23:54 Ég er að standa í töffaraskap.
@ 23:00 Ég hef bundið enda á þessar fluguhnýtingar mínar samkvæmt læknisráði. miðvikudagur, apríl 07, 2004
@ 11:56 Járnskvísan er að brjótast til blog-metorða. Persónulega finnst mér skórnir hennar Báru Kláru þjálli og skemmtilegri.
@ 11:36 Djöfull er þetta pshycadelic mahr! Já marh! Fuckin' pshycadelic! Pshycadelic if there ever was! Hvað þýðir annars pshycadelic?
@ 11:29 Leifur Jónsson teiknimyndasöguhöfundur virðist vera sá eini sem hefur manndóm í sér til að múðra. Eða, kannski er hann sá eini sem les. Fólk ætti að gera meira vart við sig.
@ 00:53 Deja-vu. Einhvern veginn finnst mér eins og ég hafi áður setið hérna og reynt að manna mig í að sækja mat.
@ 00:09 Ef það yrði haldin þverfagleg ráðstefna um mig einhvern daginn, yrði ég fyrstur á staðinn. þriðjudagur, apríl 06, 2004
@ 20:20 Fyrir þá sem ekki vita þá á ég nokkuð veglegt frímerkjasafn. Það var einhverntíma reynt að kalla mig Jón frímerki. Það festist ekki. Það mætti kannski gera aðra tilraun?
@ 20:10 Sá tvo svona grooming jack & jones kind of homma í Kringlunni í dag leiðast. Voru um tvítugt og ástfangnir. Greinilega fengitími. Fannst þetta sætt, en jafnframt mjög fyndið.
@ 16:05 Ef kettir myndu mala og beljur baula, í kór, væri ekki fráleitt að kalla það 'malmö'.
@ 12:54 Ég er banhungraður af gamla skólanum. Ætla að kýla á pilsutylboð, í réttri sjoppu núna!
@ 12:42 Uppáhalds verslanir Frímannssonar Jr. eru (í þessari röð): Þruman Tiger Rúmfatalagerinn That shit is phaaat! Comes reccomennded.
@ 12:19 Komst að því áðan hvar Borgartún er. Held ég geti ratað þangað fríhendis héðan af. Og! Ég á peninga.
@ 12:18 Fékk boðsmiða á Mistress Barböru áðan. Bumpin' latin techno bouncey grooves!
@ 01:54 ![]()
@ 01:01 Bókanir fyrir ýmsar dans samkomur teygja sig fram í miðjan maí og dreifast á nokkrar sýslur.
@ 00:21 Ég er búinn að púlla tvö comebökk á einu ári. Ekki slæmt af Frímannssyni. Báðum endurkomum hefur verið fagnað. Kitlar egóið að fá að vita að maður sé ómissandi. Oftast. mánudagur, apríl 05, 2004
@ 22:23 Skjáauglýsingar á RÚV!
@ 15:09 ![]()
@ 15:02 Í dag er góður dagur til að horfa á Mallrats. En glæsilega Orion sýningarvélin, sem keypt var til heimilisins sökum staðfestu minnar í samningaviðræðum, er biluð.
@ 02:55 Ég hef bæði dregið fisk að landi og skotið fugl. En ég hef ekki kyrkt elg.
@ 00:23 Klukkan er stundarfjórðung gengin í eitt og ég er þreyttur. Undanförnum mínútum hefur verið eytt í að ígrunda hvort skynsamlegt sé að gera út leiðangur upp í eldhús og sækja þangað mat og drykk. Ég ætla að hugsa þetta aðeins betur og fara svo upp og ná mér í eitthvað.
@ 00:11 ![]() sunnudagur, apríl 04, 2004
@ 20:22 Frímannsson gaf því gaum nýverið að íslenskar sjónvarpsstöðvar sýna ekki lengur skjáauglýsingar.
@ 20:19 Hörður, sá mesti spekingur og andansmaður sem ég þekki hrósar Vefatómstöðinni á hinu illa Auðvaldi í dag. Þessu ber að fagna.
@ 18:30 Keyrði Hvalfjörðinn í dag, sá enga hvali. Át rúsínur á leiðinni.
@ 15:12 Ég er búinn að eiga sama farsímann síðan í september árið 2001. Lífseigur og eigulegur gripur.
@ 12:41 Varúð. Undirförult veður! Þér gæti sýnst vera gott veður úti en láttu ekki blekkjast. Það er skítakuldi. Mæli með vetrarklæðnaði. laugardagur, apríl 03, 2004
@ 20:15 Sibbi er óvinur minn. Nokkur vissa er um það í herbúðum mínum. Hvers vegna veit ég ekki. Mikil heilabrot hafa ekki skilað neinu skynsamlegu til að álykta út frá. Samræður við æskuvini ekki heldur, en þeir eru minnugri en ég á flesta hluti. Vonandi tekst mér að skrapa saman nægann manndóm til að ganga á fund hans og spyrja hvað sé að gerlast.
@ 18:55 Lífsháski á Ruby Tuesday. Mæli með því að fólk tyggji matinn sinn.
@ 17:36 Ég las bók í dag. Afrek. Finnst það ekki jákvætt. Mér finnst það alveg ótrúlega jákvætt. Annars væri ég bara hálviti. föstudagur, apríl 02, 2004
@ 17:15 Akranes er sér á báti með gælunöfn. Ég heyrði tvær uppfærslur í fyrradag. Alli Sjökíló (var áður Hvorukyn) Ási Leiðinlegi (var áður Landasali minnir mig) Þætti gaman að vita hvort ég eigi mér eitthvað svona viðurnefni. Léttið því af sálu ykkar í múðrið ef svo er.
@ 17:09 Eigum við ekki að fá okkur kaffisopa og skjótast svo neður á verkstæði og kanna málið félagi? Kunningji minn var að rífa í sundur eina svona elsku um daginn, sama módel. Það gæti verið að kallinn ætti öxulhosu þarna einhversstaðar í draslinu.
@ 13:40 Helvítis, loksins þegar ég fæ sniðuga hugmynd sem kemst í framkvæmd þá er andskotans Leibbi skrefi á undan mér! Við erum samt í Búnaðarbankanum og höldum því báðir kúlinu.
@ 13:31 ![]() "How could Stan Lee come in to my mall and get by me? I must be slipping in my old age." Sá sem getur leyst kvikmyndagetraunina fær ís. Teiknimyndasögurnar verða skenktar þegar höfundur er í stuði.
@ 12:17 Djöfull er ég ánægður með að Worm Is Green séu að meika það. Þau eiga það fuckin skilið. Til lukku! Ps. lag 1 á TWIG002 er skíturinn og ég ætla að re-edita það og nota þegar ég plötusnúðast. Ps. #2 sendið mér nýja efnið ykkar! :o)
@ 02:13 Sumt er ekki svalt. Til dæmis gaurar með munntóbak í tönnunum og þann ásetning í farteskinu að komast á trúnó með manni, um eitthvað sem skiptir engu fjandans máli. Lenti í þessu tvisvar um daginn.
@ 02:08 Lesendur athugið. Það er góður rauður lakkrís í umferð, seldur í Esso sjoppunni á Vík í Mýrdal. Bílar eru líka oft í umferð, og knattspyrnuleikir.
@ 01:51 Þegar tvíkynhneygðir eru á lausu, eru þau þá tvíhleyp? Það er nefnilega stóra spurningin. fimmtudagur, apríl 01, 2004
@ 13:57 Við erum að tala um það, félagi, að svona bíll kostar tvær komma fimm á Íslandi, lágmark! Get fengið hann í gegn um kunningja minn á tólfhundruðþúsund. Hvernig lýst kallinum á það? Ha! Félagi...
@ 11:44 Riddar og yddarar eiga ekki margt sameiginlegt. |